Þar sem líkami, hugur og
hjarta fá að vinna saman

Þar sem líkami, hugur og hjarta fá að vinna saman

Að þekkja styrkinn sem býr innra með okkur og finna jafnvægið milli þess að hlusta, hlúa að og ögra okkur.

Meðvitaður styrkur sameinar hreyfingu, núvitund, jóga og verkfæri jákvæðrar sálfræði til að styðja við jafnvægi, vellíðan og innri ró.

Viðburðir og námskeið

Tímar, námskeið og viðburðir þar sem hreyfing, nærvera og tenging við okkur sjálf fá að njóta sín.

Fyrirtæki & vinnustaðir

Fjölbreytt og sérsniðin þjónusta sem styður við hreyfingu, nærveru og vellíðan á vinnustað.

Nærandi helgar

Rými til að stíga út úr amstri hversdagsins, hreyfa líkamann, hægja á og hlaða batteríin í góðu umhverfi.

Margar leiðir, sami kjarni

Í mínu starfi fléttast saman hreyfing, styrkur, jóga, Somatics, Qigong, núvitund, markþjálfun og verkfæri jákvæðrar sálfræði. 

Nálgunin getur verið mjúk eða kraftmikil, kyrr eða full af hreyfingu. Kjarninn er alltaf sá sami: að efla tenginguna við okkur sjálf, hlusta á það sem við þurfum hverju sinni og finna jafnvægi milli þess að hlúa að okkur og ögra okkur.

Ég heiti Lilja Ketils

Ég trúi því að styrkur snúist ekki eingöngu um það sem líkaminn getur. Styrkur felst líka í því að þekkja sjálfan sig, hlusta á eigin þarfir og hafa hugrekki til að mæta því sem lífið færir okkur.

Í minni nálgun mætast styrkur og mýkt, hreyfing og kyrrð, líkami og hugur. Mér finnst fátt meira gefandi en að skapa rými þar sem fólk fær að staldra við, tengjast sjálfu sér og finna sína eigin leið að aukinni vellíðan.

Það sem drífur mig áfram er löngunin til að styðja fólk í að efla styrkleika sína, auka sjálfstraust, tengjast sínum innri kjarna og skapa meira jafnvægi og vellíðan í eigin lífi.

Næst á dagskrá

Námskeið og viðburðir þar sem við könnum ólíkar leiðir að hreyfingu, nærveru, tengingu og vellíðan.

Somatic Yoga

Somatic jóga býður okkur að færa athyglina frá því hvernig hreyfingin lítur út yfir í hvernig hún finnst. Iðkunin er flæðandi, hana er hægt að iðka sem hugleiðsla á hreyfingu eða flétta hana inn í kröftugri líkamlega iðkun til að auka flæði, mýkt og léttleika.

Fullt tungl — kvöldflæði

Rólegt kvöldflæði, öndun og hugleiðsla í takt við fulla tunglið.

Nærandi helgi í náttúrunni

Helgi þar sem við hægjum á, hlöðum batteríin og tengjumst líkama og huga í fallegu umhverfi.

Pop-up tímar

Pop-up tímarnir eru stakir tímar og viðburðir þar sem við komum saman í hreyfingu og nærveru. Þeir geta meðal annars innihaldið, Yin Yoga, teygjur og flæði, styrkleikaþjálfun, hugleiðslu, öndunaræfingar, qigong og somatic hreyfingu.

Fyrirtækjaþjónusta

Engir tveir vinnustaðir eru eins. Þess vegna aðlaga ég þjónustuna að fólkinu, aðstæðum og þörfum hvers vinnustaðar. Hvort sem kallað er eftir meiri hreyfingu og orku, ró og endurheimt, fræðslu eða einfaldlega góðri stund saman.

Fyrirtækjaþjónusta

Vellíðan starfsfólks er ekki munaður, hún er mikilvægur hluti af heilbrigðu og öflugu vinnuumhverfi.

Engir tveir vinnustaðir eru eins. Þess vegna aðlaga ég þjónustuna að fólkinu, aðstæðum og þörfum hvers vinnustaðar. Hvort sem kallað er eftir meiri hreyfingu og orku, ró og endurheimt, fræðslu eða einfaldlega góðri stund saman.

Það sem ég býð upp á

Við finnum saman það sem hentar ykkar vinnustað.

Hafðu samband

Ertu með spurningu, hugmynd að samstarfi eða langar þig einfaldlega að vita meira?

Sendu mér línu, ég hlakka til að heyra frá þér.

Póstlisti

Fáðu fréttir af nýjum námskeiðum, viðburðum, hugleiðslum og öðru sem er framundan.

© 2026 Meðvitaður styrkur · Lilja Björk Ketilsdóttir

Kt. 000000-0000 · Persónuverndarstefna